bloggsvæði Bóa

Hæ þið þarna úti

17.09.2009 23:19:26 / borkur

SMOKIE , man einhver eftir þessari hljómsveit ?

Árið er 1965, ég er 3ja ára og ekki farinn að hlusta á útvarpið að ráði njé plötur, vinylplöturnar voru alls ráðandi, 33ja snúninga eða 45 snúninga smáskífur, með 2-4 lögum á.
Í Beder´s Grammar School í Bradford eru nokkri nördar að gutla á gítara og syngja, þeir kalla sig The Yen, og syngja á skólaböllum.  Þeir skipta um nafn og heita The Sphynx en ekki gengur það betur og breyta nafni hljómsveitarinnar í Essence..

Þeir heita;  Chris Norman, fæddur 1950, söngur, gítar og píanó- Terry Uttley, bassi og söngur, fæddur 1951 - Alan Silson, fæddur 1951,gítar og söngur - og trommarinn Ron , Kelly, fæddur 1950.

Þessir gutlarar, 15 og 16 ára túruðu um borgina og nágrenni næsta árið, en breyttu enn um nafn á bandinu og hétu nú; The Black Cats.  
1967  breytu þeir enn nafni hljómsveitarinnar , í The Four Corners...  þetta fer nú að verða doltið þreytandi, en bíðum samt aðeins.

1968 fengu þeir umba sem ráðlagði þeim að skipta um nafn á bandinu... í The Elizabethans, það gekk ágætlega og þeir fóru að hafa smápening upp úr þessu.
1970 var bandið aðeins að geraða gott og BBC hljóðritaði eitt eða tvö lög með þeim, og plötufyrirtækið RCA sýndi þeim áhuga, en ráðlagði þeim að skipta um nafn... ja hérna, nú hétu þeir; Kindness.
1971 fékk Chris Norman sýkingu sem varð til þess að rödd hans varð ansi rám, en það fannst þeim bara betra og meiri karakter, þessa rödd þekkja allir sem eitthvað hafa hlustað á Smokie.

                                           Chris Norman.
Loksins fóru hlutirnir að ganga hjá strákunum, gamall skólafélagi, Pete Spencer, fæddur 1948 kom til sögunnar og gegnum hann komust þeir í samband við þá frægu gæja; Nicky Chinn og Mike Chapman, í fyrstu leist þeim ekki of  vel á þetta band, en svo fannst þeim að mætti taka sjénsinn á þeim.  Þeir fóru að semja fyrir þá, en bíðum við.. þeim leist ekki á nafn hljómsveitarinnar og lögðu til að breyta því í;  SMOKEY.

  1974 voru svo keyptar nýjar græjur og fyrsta platan, Pass It Around, kom út.
Skífan fékk samt ekki neina svakalega hlustun.
1975 kom önnur platan út, og lagið;  "If You Think You Know How to Love Me",  fékk mikla spilun:  http://www.youtube.com/watch?v=VROOtyMjPOg

og eftir fylgdi lagið; "Don't Play Your Rock'n'Roll to Me".
sem er hér:  http://www.youtube.com/watch?v=LWEarD2_XWQ

En nú kom babb í bátinn, hinn heimsfrægi ameríski Smokey Robinson hótaði málssókn vegna þess að nafn hljomsveitarinnar var eins stafað og nafnið hans. Jæja, sæælar.. þá var bara að breyta nafninu í hundraðasta skipti, en núna aðeins með því að skrifa það SMOKIE en ekki SMOKEY... þetta þaggaði niður í gamla Robinson og loks var hljómsveitin SMOKIE komin til að vera !!

Nú fóru hjólin að snúast fyrir alvöru, lögin af plötunni MIDNIGHT CAFE voru þessi helst;   "Something's Been Making Me Blue",http://www.youtube.com/watch?v=m-WTregJA7U

 "Wild Wild Angels" http://www.youtube.com/watch?v=tlA8gX1KhSo

 og  "I'll Meet You at Midnight :http://www.youtube.com/watch?v=38kDBFfx9p0

og svo  "Living Next Door to Alice"  
þetta var árið 1976.
meira kom;  "Lay Back in the Arms of Someone". :http://www.youtube.com/watch?v=WgChg4ZrLbs

 og  svo  kom platan; The Montreux Album (1978).
enn komu lögin "Mexican Girl" :http://www.youtube.com/watch?v=YAx60EtT2Es
 og  "You Took Me By Surprise". :http://www.youtube.com/watch?v=SxG1d74dysw
Needles and Pins:  http://www.youtube.com/watch?v=RQCrfyIlZJI
Fore a few Dollars More: http://www.youtube.com/watch?v=mDAJYh2qZT0
Oh Carol : http://www.youtube.com/watch?v=U_eFpHwZAT8&feature=PlayList&p=6D755E8616B55117&index=0&playnext=1
Take Good care Of My Baby: http://www.youtube.com/watch?v=miPCrPZYcxA



Frá 1981 til 1986 voru mögur ár hjá Smokie, plöturnar seldust ekkert sérlega vel og þetta ár, 1986 ákvað Chris Norman að hætta í bandinu, hann var leystur af af nýjum söngvara,
þessum hér; 

Alan Barton, sá varð ansi frægur þegar lagið :  "Living Next Door To Alice",   kom út, og ekki var síður gaman að hlusta á kómedíuna hans  Roy 'Chubby' Brown,  sem breytti laginu AÐEINS... í "Who The Fuck is Alice".   hér:  http://www.youtube.com/watch?v=tlzn9lVUMtE


1995 kom varð svo nokkurs konar comeback, þegar lagið Living next door to Alice var endyrhljóðritað með og fékk þessa frægu viðbót: "who the fuck is Alice ?"  eins og kom fram hér að ofan
  Lagið varð óendanlega frægt og var spilað um allan heim.

Það var einmitt í einum af þessum túrum sem rúta hljómsveitarinnar fór útaf veginum og krassaði í Þýskalandi,  í miklum haglstormi, Alan Barton slasaðist alvarlega og lést eftir 5 daga á spítala.
Mike Craft var síðar innlimaður sem þriðji aðalsöngvari hljómsveitarinnar og bandið hélt áfram, þótt enn yrðu breytingar,Alan Silson ákvað að hefja eigin sólóferil og hætti.

2001 komu tvö albúm út með lögum hljómsveitarinnar og 2004 kom stúdíó albúm með lögum þeirra," On The Wire",   Þetta markaði upphaf nýrra hæða hjá bandinu og 11 af 13 lögum á plötunni eru samin af meðlimum bandsins.

2006 kom út platan : From the Heart",   
Hljómsveitin Smokie er enn starfandi nú árið 2009, frá árinu 1965 hefur mikið vatn runnið til sjávar og okkur sem hafa hlustað á lögin gegnum tíðina, finnst alltaf gaman að smella einu lagi undir nálina, finna fílinginn og hverfa aftur til fortíðar, þar sem engar áhyggjur eru og allir eru ungir, ástfangnir og hamingjusamir, ekki satt ?

 

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  53  Alls: 57651
Klukkan
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti